Leitarsjóður er heiti yfir einkahlutafélag (“SPV”) sem er stofnað utan um ungan einstakling og leit hans að fyrirtæki til að kaupa, reka í gegnum vöxt og umbreytingu þar til ákvörðun er tekin að selja aftur. Fjárfestar fjármagna leitina (laun og annan kostnað) og útvega fjármagn til kaupa á fyrirtæki..
Leit að fyrirtæki tekur að jafnaði 12-18 mánuði og við kaup á fyrirtæki tekur frumkvöðullinn við sem framkvæmdastjóri og fær eignarhlut í fyrirtækinu sem getur aukist í takt við árangur og ávöxtun fjárfesta. Við kaupin er ný stjórn í fyrirtækinu mynduð af fjárfestum sem mun styðja og leiðbeina framkvæmdastjóranum að ná settum markmiðum þar til fyrirtækið er selt aftur, venjulega 5-7 árum frá kaupum.

Fyrirtækin sem eru helst í fókus hjá mér tengjast mínum bakgrunni í upplýsingatækni. Fyrsti fasi hjá mér snýst um að finna áhugaverð fyrirtæki og skoða markaðinn í heild. Í framhaldi er gerð dýpri greining á rekstri þessara fyrirtækja og samband haft við eigendur. Oft eru félögin ekki til sölu en það er alltaf hægt að læra af reynslumiklum aðilum í umhverfinu.